|
||
1916Fyrsta barnaleikritið frumsýnt19. júní 1916 var sænski leikurinn Óli smaladrengur frumsýndur í Iðnó undir stjórn Stefaníu Guðmundsdóttur. Leikendur voru allir börn og lék Anna, dóttir Stefaníu, (Anna Borg) titilhlutverkið. Sýningin var liður í hátíðarhöldum í tilefni þess að eitt ár var þá liðið frá því íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis, en allur ágóði rann í byggingarsjóð Landsspítalans. Þjóðleikhúsið leitaðist frá upphafi við að sýna eitt barnaleikrit á hverju ári. Fyrsta barnasýningin var Snædrottningin eftir ævintýri H.C. Andersen veturinn 1950-51 undir stjórn Hildar Kalman, en frægasta barnasýning fyrstu áratuganna var tvímælalaust Kardimommubærinn eftir Thorbjörn Egner sem Klemenz Jónsson leikstýrði. Hún var frumsýnd árið 1960 og gekk lengi við gríðarlegar vinsældir, enda fór úrvalið af leikendum hússins þar á kostum. Hér má ekki heldur gleyma þætti Ríkisútvarpsins. Snemma mun hafa verið tekið að flytja stutta leikþætti í barnatímum og síðar urðu framhaldsleikrit fyrir börn og unglinga nokkuð reglulegur liður í dagskránni. Oft voru það leikgerðir á vinsælum barna- og unglingabókum, s.s. sögum Ármanns Kr. Stefánssonar og Stefáns Jónssonar. Barnatími Sjónvarps hefur á síðari árum orðið aðalvettvangur leikins barnaefnis í Ríkisútvarpinu, eins og þróunin hefur orðið víðast hvar annars staðar. Tæpast verður sagt að íslensk leikskáld hafi sýnt börnum og unglingum sérstakan áhuga, þó að frá því séu stöku undantekningar. Af þeirri kynslóð leikskálda, sem kemur fram upp úr 1960, var Oddur Björnsson einna drýgstur við samningu barnaleikrita og af næstu kynslóð þar á eftir Ólafur Haukur Símonarson. Ein af vinsælustu barnasýningum Þjóðleikhússins voru Óvitar Guðrúnar Helgadóttur sem hlutu feykigóðar viðtökur þegar þeir voru frumsýndir árið 1980 undir leikstjórn Brynju Benediktsdóttur. Önnur eftirminnileg barnasýning í Þjóðleikhúsinu var Skilaboðaskjóða Þorvalds Þorsteinssonar. Leikhópar þeir, sem hafa sett mikinn svip á íslenskt leikhúslíf síðustu tvo áratugi, hafa sumir leitast við að sinna börnum og unglingum. Innan Alþýðuleikhússins starfaði t.d. um hríð sérstakur barna- og unglingaleikhúshópur, "Pældíðí-hópurinn", og á síðustu 10-15 árum hafa komið fram hópar sem hafa sérhæft sig á þessu sviði, s.s. Möguleikhúsið undir forystu Péturs Eggerz og Stopp-hópurinn sem Eggert Kaaber stendur fyrir. Mynd: Óli smaladrengur, Leyndarmál frú Stefaníu Tilbaka |
Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur til okkar daga. Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu. |
|
Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Heimilisfang: Hringbraut 121, 3. hæð, 107 Rvk | Símar: 511-2324 og 863-6437 | leikminjar@akademia.is |
||