|
||
1948Fyrsta leikför Íslendinga til útlandaÁrið 1948 hélt Leikfélag Reykjavíkur í ferð til Helsinki með sýningu sína á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Það var að vísu ekki í fyrsta skipti sem íslenskir leikarar léku fyrir útlenda áhorfendur utan heimalandsins. Stefanía Guðmundsdóttir hafði t.d. sýnt list sína á vegum Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn í ferð sinni þangað árið 1904 og síðar fóru bæði hún og Guðrún Indriðadóttir í frægar leikferðir til Vesturheims (Guðrún 1912, Stefanía 1920-21). Þá má nefna útskriftar-sýningu Haralds Björnssonar og Önnu Borg á sviði Kgl. leikhússins í Kaupmannahöfn árið 1927. En Helsinki-förin var fyrsta ferð íslensks leikflokks með eigin listsköpun til útlanda.
Ferðir af þessu tagi voru fátíðar næstu áratugi. Íslenskt leikhús átti enn nokkuð í land með að geta boðið upp á list sem stæðist samjöfnuð við list nágrannaþjóðanna. Fyrstu tuttugu árin fór Þjóðleikhúsið þannig aðeins tvisvar í leikferðir til útlanda: í fyrra skiptið árið 1957 með Gullna hliðið til Kaupmannahafnar og Osló, í síðara skiptið árið 1968 með Galdra-Loft til Stokkhólms og Helsinki. En það var ekki fyrr en með Inúk á áttunda áratugnum að íslensk leiksýning vakti umtalsverða athygli meðal annarra þjóða. Tilbaka |
Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur til okkar daga. Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu. |
|
Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Heimilisfang: Hringbraut 121, 3. hæð, 107 Rvk | Símar: 511-2324 og 863-6437 | leikminjar@akademia.is |
||