Greinar
Björn G. Björnsson
Björn G. Björnsson hóf störf sem leikmyndateiknari 1966 við stofnun ríkissjónvarpsins og starfaði við það um árabil. Hann lagði einnig stund á dagskrárgerð og vann við leikhús og kvikmyndir. Hin síðari ár hefur aðalstarf Björns verið hönnun sýninga og safna, bæði innan minjavörslunnar og fyrir sveitarfélög og stofnanir.
Ólafur J. Engilbertsson
Ólafur J. Engilbertsson er BA í sagnfræði frá Háskóla Íslands. BA-ritgerð hans nefnist Leikmyndlist á Íslandi 1950-2000 og fjallar um þróun myndrænnar framsetningar í leikhúsi og sjónvarpi frá upphafi atvinnuleiklistar á Íslandi. Ólafur nam einnig leikmyndahönnun við Institut del teatre í Barcelona og grafíska hönnun við Academy of Art College í San Francisco. Hann starfaði sem leikmyndateiknari og grafískur hönnuður hjá Sjónvarpinu um árabil, en starfar nú sjálfstætt við hönnun sögusýninga, bæði fyrir söfn og ýmsa aðila utan safnageirans.
|
Jón Viðar Jónsson
Jón Viðar Jónsson er doktor í leikhúsfræðum frá Stokkhólmsháskóla og hefur um langt árabil stundað margvísleg fræðistörf á sviði íslenskrar leiklistarsögu og leikbókmennta, auk þess sem hann hefur ritað leiklistargagnrýni. Hann er nú forstöðumaður Leikminjasafns Íslands.
|

Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt
verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags
Reykjavíkur til okkar daga.

Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra
íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu.
|