|
||
Íslensk leikhúsGildaskálinn (Skandinavia, Nýi klúbbur - Kirkjustræti 2)Árið 1850 var reist stór timburbygging, tvílyft, á lóðinni við suðurenda Aðalstrætis, þar sem Herkastalinn stendur nú. Á neðri hæðinni var rúmgóður salur til veitingasölu og samkomuhalds, auk biljarðstofu, en á efri hæðinni voru gistiherbergi. Þetta hús leysti af hólmi eldra klúbbhús sem var byggt um 1800 og stóð aðeins sunnar við nýja húsið. Gamla húsið var ekki rifið, þegar nýtt hús tók við hlutverki þess, heldur byggt saman við það. Húsið gekk undir ýmsum nöfnum (Nýi klúbbur, Gildaskálinn, Skandinavia) og varð aðalveitinga- og samkomuhús bæjarins næstu áratugi.
Árið 1866 var efri hæðin tekin undir sjúkrahússtarfsemi og varð eftir það óhægra um vik að leika á neðri hæðinni. Engu að síður hélt veitingasala áfram, veislur og dansleikir, þó að sjúklingar væru á hæðinni fyrir ofan. Á áttunda áratugnum var oftast leikið í Glasgow, en á fyrstu árum níunda áratugarins bar enn við að leikið væri í gamla Gildaskálanum; m.a. var Nýársnótt Indriða Einarssonar sýnd þar veturinn 1879-1880. Í auglýsingu Þjóðólfs var tekið fram að leiksýningarnar færu fram "á spítalanum", talandi dæmi um þröngbýlið í Reykjavík þeirra tíma. Húsið stóð til 1916 og var síðustu tvo áratugina í eigu Hjálpræðishersins. Heim.: Hjörleifur Stefánsson (ritstj.), Í Kvosinni (Reykjavík 1987), Páll Líndal, Reykjavík - Sögustaður við Sund, 2. bindi (Reykjavík 1987), Sveinn Einarsson, Íslensk leiklist I (Reykjavík 1991) |
Hólavallaskóli
|
|
Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Símar: 862 4808 og 863 6437 | Netfang: leikminjar@akademia.is |
||