|
||
Íslensk leikhúsGlasgow (Vesturgata 5A)Glasgow var stórt timburhús, tvær hæðir með háu risi, og mikið um sig, "stærsta húsið á landinu" segir Klemenz Jónsson í Sögu Reykjavíkur. Húsið var reist nyrst í Grjótaþorpinu árið 1863 af skosku verslunarfélagi og dró nafn sitt af því. Undir því öllu var hár steinlímdur kjallari og lágu úr honum vagnteinar niður á bryggju sem var gerð um leið og húsið, svo að hægt væri að flytja vörurnar beint úr skipunum inn í geymslurnar.
Í þessu húsi starfaði Sigurður Guðmundsson málari að síðustu leiksýningum sínum veturna 1872-73 og 1873-74. Varð hann innkulsa við leiktjaldamálun þar síðari veturinn og komst aldrei til fullrar heilsu eftir það. Nokkuð var leikið þarna á næstu árum, en fremur stopult, að því er best er vitað, eftir að Egill seldi húsið 1888. Þá var komið nýtt leikhús í bæinn, Gúttó, og skammt í að fyrsta sérbyggða leikhúsið, leikhús Valgarðs Breiðfjörð, risi af grunni. Í Glasgow fór fram ýmis menningarstarfsemi önnur. Þar var náttúrugripasafnið um skeið til húsa og árið 1879 var þar haldin fyrsta málverkasýning á Íslandi með eftirprentunum erlendra málverka. Í húsinu sýndi íslenskur málari einnig í fyrsta sinni verk sín árið 1900; það var Þórarinn B. Þorláksson sem greip reyndar einnig í að mála leiktjöld fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Síðast var húsinu breytt í íbúðarhús og voru þar um 40 herbergi. Húsið brann árið 1903 og var það stærsti bruni í sögu Reykjavíkur fram að þeim tíma. Heim.: Klemenz Jónsson, Saga Reykjavíkur (Reykjavík 1929), Páll Líndal, Reykjavík - Sögustaður við Sund, 3. bindi (Reykjavík 1988), Sveinn Einarsson, Íslensk leiklist I (Reykjavík 1991) |
Hólavallaskóli
|
|
Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Símar: 862 4808 og 863 6437 | Netfang: leikminjar@akademia.is |
||