Forsíða

Málþing og ráðstefnur



Málþing um íslenska leiklistarfræði

Laugardaginn 14. nóvember 2009 efndu Leikminjasafn Íslands og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands til málþings um íslenska leiklistarfræði. Málþingið var einnig haldið í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Mjög góð aðsókn var að því, þrátt fyrir margs konar viðburði úti um allan bæ, þar á meðal heilan þjóðfund í Laugardagshöllinni. Á málþinginu voru flutt eftirtalin erindi:

Ólafur J. Engilbertsson, sagnfræðingur og leikmyndahöfundur: "Rétt landslag eða róttæk list?" - sögunni miðlað á sviðinu.

Ingibjörg Björnsdóttir, listdanskennari: "Ausdruckstanz" á íslensku leiksviði - Um dansarann Ellen Kid.

Magnús Þór Þorbergsson, lektor við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands, "Hvað eigum við að kalla instructör?" - Nokkrar hugleiðingar um stöðu leikstjórans í íslensku leikhúsi á 3. áratugi síðustu aldar.

Jón Viðar Jónsson, forstöðumaður Leikminjasafns Íslands: Að dæma eða ekki að dæma. Hugleiðingar um tilvistarvanda íslenskrar leiklistargagnrýni á fyrri hluta síðustu aldar.

Trausti Ólafsson, leiklistarfræðingur: Nýjársnóttin: Gleðileikur Indriða Einarssonar og íslenskir samtímaviðburðir.




Björn G. Björnsson, leikmyndahöfundur: Hvernig geymist leiklist?

Sveinn Einarsson stjórnarformaður Leikminjasafnsins setti málþingið og Dagný Kristjánsdóttir, prófessor við H.Í. stýrði umræðum.

Málþingið átti sér nokkurn aðdraganda. Á síðari árum hefur orðið töluverður vöxtur í rannsóknum á íslenskri leiklist. Staða fræðigreinarinnar innan fræðasamfélagsins hefur verið að styrkjast, ekki síst eftir að Leikminjasafn Íslands var stofnað fyrir sex árum og fræðakennsla var efld í Leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Hugmyndin með málþinginu var fyrst og fremst sú að fylgja þessari þróun eftir, vekja athygli á þessum geira íslenskra menningarrannsókna og skapa um leið vettvang fyrir fræðimenn og aðra sem áhuga hafa að koma saman og skiptast á skoðunum.



Leikminjsafnið væntir þess að þetta framtak verði upphaf á aukinni og fjölbreyttari umfjöllum um íslenskt leikhús, ekki síst fræðilega og sögulega. Slík málþing gætu þá orðið árviss viðburður, hugsanlega í tengslum við útgáfur eða annað sem upp kann að koma. Þær undirtektir, sem þingið fékk, taka af allan vafa um að jarðvegur er hér fyrir því.


 

Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur til okkar daga.

Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu.

Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Heimilisfang: Hringbraut 121, 3. hæð, 107 Rvk | Símar: 511-2324 og 863-6437 |  leikminjar@akademia.is