|
||
Stofnskrá Leikminjasafns ÍslandsSkipulagsskrá fyrir sjálfseignarstofnunina Leikminjasafn Íslands 1. gr. Stofnendur Stofnendur Leikminjasafns Íslands eru þessir: Æðsta stjórn stofnunarinnar er í höndum fulltrúaráðs Leikminjasafns Íslands. Hver framangreindra stofnenda tilnefnir einn fulltrúa í fulltrúaráðið og annan til vara. Jafnframt hafa félagar með einstaklingsaðild að Samtökum um leikminjasafn heimild til að tilnefna einn fulltrúa úr sínum hópi og annan til vara. Tilnefningum skal skilað þremur vikum fyrir aðalfund og tekur gildi frá þeim tíma. Tilnefning gildir þar til stofnandi ákveður annað eða hættir starfsemi. 2. gr. Tilgangur Til leikminja teljast m.a. handrit, teikningar, ljósmyndir, prentuð gögn, líkön, leikbúningar og leikmunir, tæknibúnaður, leikmyndir, ljósmyndir, hljóð- og myndupptökur, jafnt úr leikhúsum, útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum, er tengjast leiklistarstarfsemi. Til leiklistarstarfsemi teljast m.a. leikrit, óperur, óperettur, söngleikir, ballett, brúðuleikir, revíur og skemmtiefni, svo og allar listgreinar sem tengjast flutningi leikins efnis. 3. gr. Stofnframlag 4. gr. Aðalfundur, fulltrúaráð og stjórn Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og kýs úr sínum hópi formann, varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnendur. Fimm stjórnarmenn sameiginlega hafa umboð til að skuldbinda stofnunina. Enga mikilvæga ákvörðun má taka nema stjórn sé fullskipuð. Stjórnarfundur er lögmætur ef fjórir stjórnarmenn sækja fund. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundi. Halda skal fundargerðir um stjórnarfundi. Aðalfund skal halda eigi síðar en 30. maí ár hvert. Aðalfund skal boða bréflega með 14 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Á aðalfundi skal stjórnin gera fulltrúaráði grein fyrir starfsemi stofnunarinnar og leggja fram endurskoðaða ársreikninga. Á aðalfund skal boða aðalmenn og varamenn, og hafa þeir síðarnefndu málfrelsi og tillögurétt. Með fundarboði aðalfundar skal senda áritaða reikninga. Dagskrá aðalfundar skal vera þannig: Varaformaður gegnir jafnframt hlutverki formanns fulltrúaráðs. Hann sér um samskipti við fulltrúa og gætir þess að stofnaðilar skipi ævinlega fulltrúa og varamann í fulltrúaráð. Hann kallar saman fulltrúaráðsfund tímanlega fyrir aðalfund. Fulltrúaráð gerir tillögur um endurnýjun stjórnarmanna skv. 4. gr. hér að ofan. 5. gr. Hlutverk stjórnar og forstöðumanns. Stjórnin ræður löggiltan endurskoðanda til að yfirfara ársreikninga stofnunarinnar og veitir viðtöku styrkjum fyrir hennar hönd. Formaður stjórnar skal sjá til þess að ársreikningur berist Ríkisendurskoðun með tilskildum hætti ár hvert. Stjórnin ræður forstöðumann til að annast daglegan rekstur safnsins. Stjórnin ákveður starfskjör forstöðumanns og setur honum erindisbréf. Forstöðumaður vinnur að framgangi þeirra verkefna sem getið er um í 2. gr. í samræmi við starfsáætlun sem stjórnin hefur samþykkt. Forstöðumaður fer með daglega stjórn fjármála stofnunarinnar í umboði stjórnar, undirbýr fjárhagsáætlun, vinnur að fjáröflun, annast reikningsskil og ræður annað starfsfólk. Óheimilt er að stofna til útgjalda eða skuldbindinga umfram heimild stjórnar. Forstöðumaður situr stjórnarfundi með málfrelsis- og tillögurétti. Forstöðumaður skal sjá til þess að safnið starfi í samræmi við viðurkenndar starfs- og siðareglur safna. 6. gr. Tekjur Stofnuninni og stjórn hennar er heimilt að afla frekari framlaga frá stofnendum og öðrum styrktaraðilum eftir því sem þurfa þykir til að framfylgja markmiðum stofnunarinnar. Stjórn er heimilt að taka lán til sérstakra verkefna. Fé stofnunarinnar skal einvörðungu varið til að standa straum af þeim kostnaði sem til fellur við að vinna að markmiðum þeim sem skilgreind eru í 2. gr. Gera skal einstaklingum og öðrum lögaðilum kleift að gerast styrktaraðilar stofnunarinnar. Skulu þeir greiða til hennar árlegt gjald og njóta vissra fríðinda skv. nánari ákvörðun stjórnar um styrktarmannakerfi. Fé stofnunarinnar skal einvörðungu varið til að standa straum af þeim kostnaði sem til fellur við að vinna að markmiðum þeim sem skilgreind eru í 2. gr. 7. gr. Reikningsár 8. gr. Gildistaka og breytingar á skipulagsskrá. Skipulagsskrá Leikminjasafns Íslands verður aðeins breytt á aðalfundi. Tillögur um breytingar þurfa að berast stjórn fjórum vikum fyrir aðalfund. Senda skal breytingartillögur út með fundarboði aðalfundar. Tillögur skoðast samþykktar ef 2/3 hlutar atkvæðisbærra manna samþykkja. Stofnunin verður einungis lögð niður ef aðalfundur samþykkir það með 2/3 hlutum atkvæða. Verði stofnunin lögð niður skal stjórn ráðstafa eignum hennar í samræmi við markmið hennar. Leita skal staðfestingar dómsmálaráðherra á skipulagsskrá þessari, og breytingar á henni skulu einnig hljóta staðfestingu sama ráðherra. Reykjavík, 9. mars 2003 Stjórn Samtaka um leikminjasafn (undirskriftir). Staðfesting dómsmálaráðherra Efst á síðu |
Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur til okkar daga. Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu. |
|
Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Símar: 862 4808 og 863 6437 | Netfang: leikminjar@akademia.is |
||