|
||
Merki LeikminjasafnsinsMerki safnsins er vangamynd af Sigurði Guðmundssyni málara (1833-1874) og er myndin sjálfsmynd hans. Hann var einn merkasti frumherji íslenskrar leiklistar á 19. öld og hefur Leikminjasafnið kappkostað að halda minningu hans á lofti. Fyrsta verk þess eftir stofnun þess árið 2003 var að setja upp sýningu um hann í heimabyggð hans í Skagafirði. Sýningin var einnig sett upp í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði síðar sama ár. |
|
Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur til okkar daga. Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu. |
Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Símar: 862 4808 og 863 6437 | Netfang: leikminjar@akademia.is |
||