| Atómstöðin skáldsaga (1948) |
| 1972 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikgerð: Sveinn Einarsson og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjórn: Þorsteinn Gunnarsson. Frums. 14.3. |
| 1973 | Ríkisútvarpið. Leikrit Leikfélags Reykjavíkur. Leikstjóri: Þorsteinn Gunnarsson. Flutt 26.7. |
| 1975 | Leikfélag Menntaskólans á Akureyri. Leikstjórn: Kristín Ólafsdóttir. Frums. 10.4. |
| 1976 | Leikfélag Skagfirðinga. Leikstjórn: Magnús Jónsson. Frums. 10.2. |
| 1976 | Leikfélag Selfoss og Leikfélag Hveragerðis. Leikstjórn: Steinunn Jóhannesdóttir. Frums. 16.3. |
| 1981 | Skagaleikflokkurinn. Leikstjórn: Gunnar Gunnarsson. Frums. 4.4. |
| 1982 | Leikfélag Akureyrar. Leikgerð og leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir. Frums. 7.10., gestasýning í Þjóðleikhúsinu 23.11. |
| 1984 | Kvikmynd framleidd af kvikmyndafélaginu Óðni. Handrit: Þorsteinn Jónsson, Þórhallur Sigurðsson og Örnólfur Árnason. Leikstjórn: Þorsteinn Jónsson. Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson. Frums. 3.3. |
| 1987 | En liten ö i havet. Dramaten í Stokkhólmi. Leikgerð og leikstjórn: Hans Alfredson. Frums. 31.1., sýnd á Íslandi 23., 24. og 25.4. |
| 1994 | Leikfélag Blönduóss. Leikstjórn: Inga Bjarnason. Frums. 19.11. |
| |
|  |
| Brekkukotsannáll skáldsaga (1957) |
| 1973 | Sjónvarpsmynd í tveimur hlutum framleidd af Norður-þýska sjónvarpinu í samvinnu við sjónvarpsstöðvar Norðurlanda. Handrit og leikstjórn: Rolf Hädrich, textaleikstjórn: Sveinn Einarsson. Leikmynd: Björn G. Björnsson. Sýnd 11.2. og 18.2. í Sjónvarpinu Síðar sýnd í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Vestur-Þýskalandi og víðar.
|
| |
| Dúfnaveislan leikrit (1966) |
| 1966 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikstjórn: Helgi Skúlason. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Frums. 29.4. |
| 1968 | Leikfélag Akureyrar. Leikstjórn: Ragnhildur Steingrímsdóttir. Frums. 25.10. |
| 1969 | Leikfélag Neskaupstaðar. Leikstjórn: Ragnhildur Steingrímsdóttir. Frums. 29.3. |
| 1970 | Árósaleikhúsið í Björgvin. Frums. 17.10. |
| 1970 | Århus teater í Danmörku. Leikstjórn: Asger Bonfils. Frums. 21.10. |
| 1971 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikstjórn: Helgi Skúlason. Flutt 17.6. |
| 1981 | Leikklúbbur Laxdæla. Leikstjórn: Ragnhildur Steingrímsdóttir. |
| 1984 | Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms. Leikstjórn: Kári Halldór. Frums. 3.3., gestasýning á Listahátíð 6. og 7.6. |
| 1991 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikstjórn: Halldór E. Laxness. Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson. Frums. 20.9. |
| 1995 | Watermansleikhúsið í London. Leikstjórn: Dawn Lintern.
|
| |
| Heimsljós skáldsaga (1937-1939) |
| 1955 | Ljósvíkíngurinn. Þættir. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen? Flutt 10.12. |
| 1962 | Höll sumarlandsins. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen. Flutt 23.4, endurflutt 25.6. 1966. |
| 1972 | Hús skáldsins. Ríkisútvarpið. Leikgerð: Þorsteinn Ö. Stephensen. Leikstjórn: Helgi Skúlason. Flutt 23.4. |
| 1981 | Hús skáldsins. Þjóðleikhúsið. Leikgerð: Sveinn Einarsson. Leikstjórn: Eyvindur Erlendsson. Frums. 26.12. |
| 1989 | Ljós heimsins. Leikfélag Reykjavíkur. Leikgerð og leikstjórn: Kjartan Ragnarsson. Leikmynd: Gretar Reynisson. Frums. 24.10. |
| 1989 | Höll sumarlandsins. Leikfélag Reykjavíkur. Leikgerð: Kjartan Ragnarsson. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Frums. 26.10. |
| |
| Innansveitarkronika skáldsaga (1970) |
| 1992 | Leikfélag Mosfellssveitar. Handrit og leikgerð: Jón Sævar Baldvinsson, Hörður Torfason og Birgir Sigurðsson. Leikstjórn: Hörður Torfason. Frums. 29.10. |
| |
| Íslandsklukkan skáldsaga (1943-1946) |
| 1950 | Þjóðleikhúsið. Leikgerð höfundar og Lárusar Pálssonar, Snæfríður Íslandssól, sýnd undir heitinu Íslandsklukkan. Leikstjórn: Lárus Pálsson. Leikmynd: Lárus Ingólfsson. Frums. 22.4. Sýnt í tilefni fimmtugsafmælis skáldsins 23.4. 1952. Hátíðarsýning í tilefni Nóbelsverðlaunanna 17.2. 1956. |
| 1952 | 1. þáttur. Ríkisútvarpið. Leikstjórn: Lárus Pálsson. Flutt 22.4. |
| 1955 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen? Flutt 10.12. |
| 1960 | Leikfélag Akureyrar. Leikstjórn: Ragnhildur Steingrímsdóttir. Frums. 9.4. |
| 1962 | Leikfélag Akraness. Leikstjórn: Ragnhildur Steingrímsdóttir. Frums. 1.3. |
| 1968 | Þjóðleikhúsið. Leikstjórn: Baldvin Halldórsson. Frums. 31.1. |
| 1970 | Ríkisútvarpið. Hljóðritun sem gerð var árið 1957 og er samhljóða flutningi leikritsins í Þjóðleikhúsinu. Leikstjórn: Lárus Pálsson. Flutt 23. og 30.4. |
| 1974 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikstjórn: Lárus Pálsson. Flutt 1.8. |
| 1976 | Leikfélag Sauðárkróks. Leikstjórn: Gísli Halldórsson. Frums. 21.10. |
| 1979 | Ungmennafélag Biskupstungna. Leikstjórn: Sunna Borg. Frums. 30.3. |
| 1980 | Nemendaleikhús Leiklistarskóla Íslands. Leikgerð og leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir. Frums. 20.10. |
| 1985 | Þjóðleikhúsið. Leikgerð og leikstjórn: Sveinn Einarsson. Frums. 25.4. |
| 1992 | Leikfélag Akureyrar. Leikgerð og leikstjórn: Sunna Borg. Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson. Frums. 27.3. |
| 1995 | Leikfélag Selfoss. Leikstjórn: Vigdís Jakobsdóttir. Frums. 18.3. |
| 1996 | Hið ljósa man. Leikfélag Reykjavíkur. Leikgerð og leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. Búningar: Messíana Tómasdóttir. Frums. 9.3. |
| 2000 | Leikdeild ungmennafélagsins Dagrenningar. Leikstjórn: Halla Margrét Jóhannesdóttir. Frums. 11.3. |
| |
| Jón í Brauðhúsum smásaga (Sjöstafakverið, 1964) |
| 1969 | Sjónvarpsmynd. Leikstjórn: Baldvin Halldórsson. Sýnd 23.11. |
| 1992 | Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir. Flutt 19.4. |
| |
| Kristnihald undir Jökli skáldsaga (1968) |
| 1970 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikgerð og leikstjórn: Sveinn Einarsson. Frums. 20.6., endurfrums. 12.9. |
| 1974 | Tröndelag Teater í Þrándheimi. Leikstjórn: Sveinn Einarsson. Frums. 18.10. |
| 1975 | Leikfélag Akureyrar. Leikgerð: Sveinn Einarsson. Leikstjórn: Sveinn Einarsson og Eyvindur Erlendsson. Frums. 14.11. |
| 1978 | Þættir. Leikfélag A-Eyfellinga. Leikstjórn Margrét Tryggvadóttir. |
| 1982 | Leikfélag Blönduóss. Leikstjórn: Svanhildur Jóhannesdóttir. |
| 1982 | Vestur-þýska útvarpið (NDR og WDR). Flutt 20.5. |
| 1985 | Leikhópur Mána. Leikstjórn: Ingunn Jensdóttir. |
| 1987 | Leikfélag Ólafsvíkur. Leikgerð: Sveinn Einarsson. Leikstjórn: Auður Jónsdóttir. Frums. 21.11. |
| 1989 | Kvikmynd framleidd af kvikmyndafélaginu Umba í samstarfi við Magma-Film og SDR-sjónvarpsstöðina í Þýskalandi. Handrit: Gerald Wilson. Leikstjórn: Guðný Halldórsdóttir. Frums. 25.2. |
| 1991 | Leiklestur á Kirkjulistahátíð. Hallgrímur Helgi Helgason tók efnið saman. Frumflutt 21.5. |
| 1997 | Fínn miðill. Leikgerð og leikstjórn: Sveinn Einarsson. Flutt 25.12. á útvarpstöðinni Klassík FM. |
| 2001 | Leiklestur á Listahátíðinni í Akershuskastala í Osló. Leikgerð og leikstjórn: Sveinn Einarsson. Frums. 13.6. |
| 2001 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikgerð: Sveinn Einarsson. Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson. Leikmynd: Árni Páll Jóhannsson. Frums. 28.9. |
| |
| Lilja smásaga (Fótatak manna, 1933) |
| 1978 | Stuttmynd framleidd af Íslensku leikritamiðstöðinni. Handrit: Hrafn Gunnlaugsson og Snorri Þórisson. Leikstjórn: Hrafn Gunnlaugsson. Frums. 13.2.
|
| |
| Paradísarheimt skáldsaga (1960) |
| 1963 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Lárus Pálsson. Flutt 14.9., endurflutt 18.3. 1967 og 29.5. 1975. |
| 1980 | Sjónvarpsmynd í þremur hlutum framleidd fyrir Norður-þýska sjónvarpið, í samvinnu við sjónvarpsstöðvar Norðurlanda og svissneska sjónvarpsstöð. Handrit og leikstjórn: Rolf Hädrich, aðstoðarleikstjórn: Sveinn Einarsson. Leikmynd: Björn G. Björnsson. Frums. 6.12., sýnd í Sjónvarpinu 25. og 28.12. og 1.1. 1981.
|
| |
| Prjónastofan Sólin leikrit (1962) |
| 1966 | Þjóðleikhúsið. Leikstjórn: Baldvin Halldórsson. Leikmynd: Gunnar R. Bjarnason. Frums. 20.4. |
| 1983 | Herranótt M.R. Leikstjórn: Andrés Sigurvinsson. Frums. 24.1. |
| 1992 | Þjóðleikhúsið. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir. Frums. 24.4. |
| |
| Rhodymenia Palmata ljóðabálkur (Kvæðakver, 1930) |
| 1992 | Frú Emilía. Kammerópera eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Leikstjórn: Guðjón Pedersen. Frums. 12.5. Sýningar í Reykjavík, í Harstad í Noregi, í Kaupmannahöfn og Lissabon á árunum 1992-1998. |
| |
| Salka Valka skáldsaga (1931-32) |
| 1947 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen. Flutt 1.5. |
| 1954 | Kvikmynd framleidd af sænska kvikmyndafyrirtækinu Nordisk Tonefilm í samvinnu við Edda-Film á Íslandi. Leikstjórn: Arne Mattsson. Frums. 4.12.
|
| 1955 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen? Flutt 10.12.? |
| 1966 | Annar heimur. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen. Flutt 12.3., endurflutt 1.5. 1972. |
| 1977 | Ballett eftir Marjo Kuusela með tónlist eftir Kari Rydman, fluttur af finnska dansflokknum Raatikko. Frums. í Helsingfors 22.9., sýndur í Þjóðleikhúsinu 6.12. |
| 1981 | Áhugaleikhús í Norður-Finnlandi og borgarleikhúsið í Kajana í Finnlandi. Leikgerð: Aila Lavaste. Leikstjórn: Inkeri Rosilo. Frums. 7.2. |
| 1982 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikgerð: Stefán Baldursson og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Frums. í Reykjavík 28.1. og sýnt á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Théâtre des Nations (“Leikhús þjóðanna") í Sofíu í Búlgaríu 29. og 30.6. |
| 1984 | Leikfélag Húsavíkur. Leikstjórn: María Kristjánsdóttir. Frums. 2.4. |
| 1988 | Hjalmar Bergman-leikhúsið (Länsteatern) í Örebro. Leikgerð: Stefán Baldursson og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Frums. 16.9. |
| 1990 | Leikfélag Fljótsdalshéraðs. Leikstjórn: Inga Bjarnason. Frums. 10.4. |
| 1990 | Det Norske Teatret í Osló. Leikgerð: Stefán Baldursson og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Frums. 9.11. |
| 1992 | Herranótt M.R. Leikgerð: Stefán Baldursson og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjórn: Sigrún Valbergsdóttir. Frums. 8.3. |
| 1992 | Klaksvíkar Sjónleikarfelag í Færeyjum. Leikgerð: Stefán Baldursson og Þorsteinn Gunnarsson. Frums. 28.11. |
| 1995 | Draumasmiðjan. Leiklestur. Frums. 1.7. |
| 1997 | Leikfélag Hveragerðis. Leikstjórn: Inga Bjarnason. Frums. 11.3. |
| 1997 | Tampereen Työväen Teatteri í Tampere. Leikgerð og leikstjórn: Sirkku Peltola. Frums. 23.4. |
| 1999 | Salka ástarsaga. Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör og Annað svið. Leikgerð: Hilmar Jónsson og Finnur Arnar Arnarsson. Leikstjórn: Hilmar Jónsson. Leikmynd: Finnnur Arnar Arnarsson. Frums. 22.10. Sýnd á Leiklistardögum Ríkisleikhússins í Stokkhólmi sem haldnir voru 11.-15.5. 2000. |
| |
| Silfurtúnglið leikrit (1954) |
| 1954 | Þjóðleikhúsið. Leikstjórn: Lárus Pálsson, tónlist: Jón Nordal. Leikmynd: Lárus Ingólfsson. Frums. 9.10. |
| 1955 | Malyleikhúsið í Moskvu. Leikstjórn: Pavel Markoff. Frums. 8.5. |
| 1956 | Þjóðleikhúsið í Helsingfors (Suomen Kansallisteatteri). Leikstjórn: Ella Eronen. Frums. 11.1. |
| 1975 | Þjóðleikhúsið. Leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir og Sveinn Einarsson. Frums. 24.4. |
| 1977 | Leikklúbbur Laxdæla. Leikstjórn: Magnús Jónsson. Frums. 22.4. |
| 1978 | Leikrit í sjónvarpsgerð og leikstjórn Hrafns Gunnlaugssonar. Leikmynd: Björn G. Björnsson. Sýnt 26.12. |
| 1986 | Leikfélag Akureyrar. Leikstjórn: Haukur J. Gunnarsson. Frums. 24.1. |
| 1988 | Listaklúbbur Fjölbrautaskóla Vesturlands. Leikstjórn: Stefán Sturla Sigurjónsson. Frums. 11.3. |
| 1994 | Unglingadeild Leikfélags Kópavogs. Leikgerð og leikstjórn: Stefán Sturla Sigurjónsson. Frums. 29.10. |
| 1995 | Leikfélag Menntaskólans á Akureyri. Leikstjóri: Rósa Guðný Þórsdóttir. Frums. 4.4. |
| |
| Sjálfstætt fólk skáldsaga (1934-35) |
| 1948 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen. Flutt 1.5. |
| 1955 | Þættir. Ríkisútvarpið. Leikgerð og leikstjórn: Þorsteinn Ö. Stephensen? Flutt 10.12. |
| 1972 | Þjóðleikhúsið. Leikgerð og leikstjórn: Baldvin Halldórsson. Leikmynd: Snorri Sveinn Friðriksson. Frums. 23.4. |
| 1979 | Leikfélag Akureyrar. Leikgerð og leikstjórn: Baldvin Halldórsson. Frums. 23.3. |
| 1996 | Leiklistardeild ungmennafélagsins Dagrenningar. Leikgerð: Hjalti Rögnvaldsson, Gísli Einarsson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Leikstjórn: Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Frums. 1.12. |
| 1999 | Bjartur-Landnámsmaður Íslands og Ásta Sóllilja-Lífsblómið. Þjóðleikhúsið. Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Leikstjórn: Kjartan Ragnarsson. Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson. Frums. 21.3. Sýnt á heimssýningunni EXPO 2000 í Hannover. |
| 2000 | New Perspectives Theatre í Mansfield á Englandi. Leikgerð og leikstjórn: Charles Way. Frums. 23.3., sýnt á Íslandi 18., 19., 20. og 21.5. |
| |
| Straumrof leikrit (1934) |
| 1934 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikstjórn og leikmynd: Gunnar Hansen. Frums. 29.11. |
| 1971 | Ríkisútvarpið. Leikstjórn: Helgi Skúlason. Flutt 25.11. |
| 1977 | Leikfélag Reykjavíkur. Leikstjórn: Brynja Benediktsdóttir. Frums. 16.3. |
| 1992 | Þjóðleikhúsið. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson. Frums. 23.4 og útvarpað beint í Ríkisútvarpinu. |
| |
| Strompleikurinn leikrit (1961) |
| 1961 | Þjóðleikhúsið. Leikstjórn: Gunnar Eyjólfsson. Leikmynd: Gunnar R. Bjarnason. Frums. 11.10. |
| 1972 | Leikfélag Akureyrar. Leikstjórn: María Kristjánsdóttir. Leikmynd: Ivan Török. Frums. 13.5. |
| 1974 | Ríkisútvarpið. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Flutt 21.11. |
| 1979 | Menntaskólinn í Kópavogi. Leikstjórn: Sólveig Halldórsdóttir. Frums. 17.3. |
| 1990 | Leikfélag Verslunarskóla Íslands. Leikstjórn: Ingunn Ásdísardóttir. Frums. 6.11. |
| 1992 | Þjóðleikhúsið. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Guðjón Pedersen. Frums. 24.4. |
| 1993 | Leikfélag Dalvíkur. Leikstjórn: Þráinn Karlsson. Frums. 1.4. |
| 2002 | Þjóðleikhúsið. Leikstjórn Kristín Jóhannesdóttir. Leikmynd: Rebekka A. Ingimundardóttir. Frums. 5.4. |
| |
| Úngfrúin góða og húsið smásaga (Fótatak manna, 1933) |
| 1999 | Kvikmynd framleidd af kvikmyndafélaginu Umba, íslenska kvikmyndafyrirtækinu Pegasus Productions, Nordisk Filmproduction og GötaFilm. Handrit og leikstjórn: Guðný Halldórsdóttir. Búningar: Vytautas Narbutas. Frums. 24.9. |
| |
| Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar leikgerð (tónlist eftir Pál Ísólfsson) (1945) |
| 1945 | Félag íslenskra leikara í Trípólíleikhúsinu í tilefni af hundrað ára ártíð Jónasar Hallgrímssonar 26.5. Leikstjórn: Lárus Pálsson.
|
| 1957 | Ríkisútvarpið. Leikstjórn: Lárus Pálsson. Flutt 16.11., endurflutt 22.4. |
| 1990 | Þjóðleikhúsið. Leikstjórn: Guðrún Þ. Stephensen. Frums. 16.6., endurfrums. 28.12. |
| |
| Vefarinn mikli frá Kasmír skáldsaga (1927) |
| 1997 | Leikfélag Akureyrar. Leikgerð: Halldór E. Laxness og Trausti Ólafsson. Leikstjórn: Halldór E. Laxness. Leikmynd: Finnur Arnar Arnarsson. Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir. Frums. 11.4. |
| |
| Veiðitúr í óbygðum smásaga (Sjöstafakverið, 1964) |
| 1975 | Sjónvarpsmynd. Leikstjórn: Helgi Skúlason. Sýnd 26.10. |
| 1992 | Þjóðleikhúsið. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Guðjón Pedersen. Frums. 25.4. |
Fluttar hafa verið ýmsar leiknar dagskrár til heiðurs Halldóri Laxness í atvinnuleikhúsum á Íslandi í gegnum tíðina. Má þar nefna að á 75 ára afmæli skáldsins árið 1977 var flutt í Þjóðleikhúsinu dagskráin Mannabörn eru merkileg í umsjón Bríetar Héðinsdóttur. Í tilefni af 85 ára afmælinu 23. apríl 1987 efndi menntamálaráðherra til afmælishátíðar í Þjóðleikhúsinu og sá Sveinn Einarsson um undirbúning hennar. Árið 1992, á níræðisafmæli Halldórs, var haldin þriggja daga Laxnessveisla í Þjóðleikhúsinu þar sem fluttir voru sviðsettir leiklestrar á Straumrofi, Strompleiknum, Prjónastofunni Sólinni og Veiðitúr í óbygðum, auk veglegrar ljóða-, leik- og söngdagskrár á Stóra sviðinu. Flutt var dagskrá í Iðnó árið 1998 sem samanstóð af brotum úr skáldverkum Halldórs Laxness og nefnd var eftir kvæði skáldsins, Únglíngnum í skóginum. Illugi Jökulsson tók saman ásamt Viðari Eggertssyni, sem jafnframt leikstýrði.
Í tilefni af hálfrar aldar afmæli Þjóðleikhússins árið 2000 voru settar saman dagskrár með brotum úr verkum nokkurra helstu leikskálda Íslendinga, þ.á.m. Halldórs Laxness. Umsjón með henni höfðu Sveinn Einarsson og Björn Gunnlaugsson.
Mörg áhugaleikfélög víða um land hafa einnig flutt leiknar dagskrár upp úr verkum Halldórs Laxness: t.d. Leikfélag Seyðisfjarðar: Kiljans-kvöld (1965-1966); Leikfélag Hornafjarðar: Halldór Laxness - dagskrá (1978-1979); Leikflokkurinn Hvammstanga: Bókmenntakynning (1983-1984); Ungmennafélag Stafholtstungna: Laxness-kvöld (1990-1991); Leikfélag Hveragerðis: Hvert örstutt spor (1990-1991); Leikfélag Mosfellssveitar: Afmælisdagskrá (1991-1992); Leikfélag Fljótsdalshéraðs: Dagskrá úr verkum Halldórs Laxness (1991-1992); Ungmennafélagið Ármann: Stiklað á stóru (1991-1992); Snúður og Snælda: Bókmenntakynning (1993-1994); Leikflokkurinn Hvammstanga: Laxness-dagskrá (1997-1998).