Laxness og leiklistin
Um sýninguna
Sýningin Laxness og leiklistin var opnuð í Iðnó 13. apríl 2002
Textagerð og sýningarskrá: Jón Viðar Jónsson, Björn G. Björnsson
Hönnun sýningarspjalda: Ólafur J. Engilbertsson
Hönnun sýningar: Jón Þórisson
Dagbók 13.4 - 1.5 2002
Á sýningunni Laxness og leiklistin í Iðnó voru leikminjar og leiklistarsögulegt efni í tilefni
aldarafmælis Halldórs Laxness. Rifjuð voru upp kynni Halldórs af
íslensku leikhúsi allt frá því að hann sá leiksýningu í Iðnó í fyrsta
sinn sem barn og þar til hann var sjálfur orðinn virkur þátttakandi í
leikhúsinu sem skeleggur gagnrýnandi, þjóðleikhúsráðsmaður og
framsækið leikskáld.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, opnar sýninguna
Á sýningunni voru m.a. handrit, teikningar, leikmyndalíkön, leikmunir,
búningar,ljósmyndir, myndband með frásögnum leikhúsfólks af
samstarfinu við Laxness o.fl. forvitnilegt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, opnaði sýninguna þann 13. apríl en hún stóð til 1. maí 2002.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og fyrrverandi leikhússtjóri í Iðnó, ásamt leikhúsfólki við opnun sýningarinnar
Dagskrá í tengslum við sýninguna Laxness og leiklistin
Miðvikudagur 13. apríl
Opnunarathöfn. Athöfnin hófst á því að Ólafur J. Engilbertsson,
formaður Samtaka um leikminjasafn, ávarpaði samkomuna. Sigrún
Hjálmtýsdóttir söng þrjú lög við ljóð eftir Halldór Laxness við undirleik
Jónasar Þóris Þórissonar. Dr. Jón Viðar Jónsson rifjaði upp feril Halldórs
Laxness sem leiklistargagnrýnanda og Stefán Jónsson leikari las nokkra kafla
úr dómum hans. Þá opnaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sýninguna á 2. hæð
formlega með ávarpi. Að því loknu skoðuðu gestir sýninguna, þá var gengið
til kaffidrykkju og hnallþóruveislu. Síðasta atriði dagskrárinnar var
sýning á myndbandi þar sem ýmsir leikhúsmenn rifjuðu upp kynni sín af
Halldóri Laxness og samskiptum hans við þá innan veggja leikhússins. Jón
Viðar Jónsson, sem hafði annast gerð myndbandsins, kynnti það og ræddi
jafnframt áform um stofnun leikminjasafns. Athöfnin var mjög fjölsótt, svo
sem sjá má á myndum, og munu talsvert á annað hundrað manns hafa verið
þarna.
Miðvikudagur 17. apríl
Innansveitarkronika. Leiklestur í umsjón Guðrúnar Ásmundsdóttur
og Jóns Viðars Jónssonar. Lesari með þeim Jón Júlíusson leikari.
Laugardagur 20. apríl
Söng- og upplestrardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur í samvinnu við
Hugvísindastofnun Háskóla Íslands. Sönghópur undir stjórn Jónasar Þóris
Þórissonar, einsöngvarar Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Anna Sigríður
Helgadóttir, karlakórinn Stefnir undir stjórn Atla Guðlaugssonar. Stuttir
kaflar úr Sölku Völku, Sjálfstæðu fólki, Heimsljósi og Innansveitarkroniku
fluttir af Guðrúnu Þ. Stephensen, Arnari Jónssyni, Hjalta Rögnvaldssyni og
Jóni Viðari Jónssyni. Umsjón með athöfninni og kynning: Jón Viðar Jónsson.
Leiklestur á Dúfnaveislunni
Þriðjudagur 23. apríl
Aldarafmæli Halldórs Laxness. Maraþonleiklestur á öllum
frumsömdum leikritum skáldsins, Straumrofi, Silfurtúnglinu, Strompleiknum,
Prjónastofunni Sólinni og Dúfnaveislunni. Um sextíu leikarar tóku þátt í
þessum viðburði sem tókst afar vel og var mjög vel sóttur. Lesturinn hófst
kl. 12.00 á hádegi og var þá þegar nánast fullt hús. Síðan voru leikritin
lesin hvert af öðru með stuttum hléum og lauk lestrinum ekki fyrr en komið
var vel fram yfir miðnætti. Helstu flytjendur voru Tinna Gunnlaugsdóttir,
Ingvar E. Sigurðsson (Straumrof), Þórunn Clausen, Gísli Rúnar Jónsson
(Silfurtúnglið), Guðrún Þ. Stephensen, Sigrún Sól Ólafsdóttir, Karl
Guðmundsson, Björn Hlynur Haraldsson (Strompleikurinn), Kristbjörg Kjeld,
Þorsteinn Gunnarsson, Guðmundur Ólafsson, Hjalti Rögnvaldsson, Jón
Hjartarson (Prjónastofan Sólin), Árni Tryggvason, Herdís Þorvaldsdóttir og
Arnar Jónsson (Dúfnaveislan). Rúnar Guðbrandsson hafði umsjón með leiklestrinum.
Sunnudagur 28. apríl
Söngdagskrá á vegum Kammerkórs Kópavogs undir stjórn Gunnsteins
Ólafssonar.
Miðvikudagur 1. maí
1. maí. Lokaathöfn. Einsöngur: Ingibjörg Guðjónsdóttir við undirleik
Valgerðar Andrésdóttur. Leiklestur: Tinna Gunnlaugsdóttir (frumsaminn
einleikur byggður á Atómstöðinni o.fl. verkum Laxness), Þorsteinn
Gunnarsson, Valgerður Dan og Jón Júlíusson (Dúfnaveislan). Ávarp: Ólafur J. Engilbertsson formaður Samtaka um Leikminjasafn. Björn Bjarnason
alþingismaður opnar nýja síðu á vef samtakanna, helgaða aldarafmæli Laxness.
Umsjón með athöfninni: Jón Viðar Jónsson.
Iðnó veitingahús bauð uppá Hnallþóruhlaðborð og "Dúfnaveislu" (ljúffengar franskar
skógardúfur) í tilefni sýningarinnar.
Styrktaraðilar sýningarinnar voru: Menntamálaráðuneyti, Menningarborgarsjóður, Reykjavíkurborg, Edda - miðlun og útgáfa, Seðlabanki Íslands, Grandi, Orkuveita Reykjavíkur og Ístak. Samstarfsaðilar í Iðnó voru Leikfélag Íslands og Iðnó veitingahús.
|
Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur til okkar daga.
Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra
íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu.
|