Forsíða

Verndari Leikminjasafnsins

Á stofnfundi Samtaka um leikminjasafn var farið fram á að frú Vigdís Finnbogadóttir yrði verndari Samtaka um leikminjasafn á og brást hún ljúflega við þeirri bón. Þegar Leikminjasafn Íslands var stofnað varð Vigsdís verndari þess.

Vigdís Finnbogadóttir er fædd 15.4.1930. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1949 og nam frönsku og franskar bókmenntir við háskólann í Grenoble og Sorbonne-háskóla 1949-53 með leikbókmenntir sem sérsvið og svo leiklistarsögu við Kaupmannahafnarháskóla 1957-58, ennfremur frönsku, ensku og uppeldis- og sálarfræði við HÍ. Vigdís var blaðafulltrúi Þjóðleikhússins og ritstjóri leikskrár 1954-57 og 1961-64, einn af stofnendum tilraunaleikhússins Grímu 1962, kenndi franskar leikbókmenntir við HÍ 1972-80 og var leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur í Iðnó 1972-80. Vigdís Finnbogadóttir var forseti Íslands í 16 ár, frá 1980 til 1996.

 

Settur hefur verið upp á vegum Leikminjasafns Íslands Gagnabanki íslenskra leikhúsa og leikhúslistamanna þar sem hægt verður að fá upplýsingar um verkefni í öllum íslenskum leikhúsum frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur til okkar daga.

Leikminjasafn Íslands hefur haft þann hátt á að minnast aldarafmæla merkra íslenskra leikhúsmanna undir heitinu Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu.

Póstur: Box 249, 172 Seltjarnarnes | Heimilisfang: Hringbraut 121, 3. hæð, 107 Rvk | Símar: 511-2324 og 863-6437 |  leikminjar@akademia.is